Þrautahús með 12 þrautum— ABC Skólavörur
Áfram

Þrautahús með 12 þrautum

frá Vinco
29,990 kr - 29,990 kr
29,990 kr
29,990 kr - 29,990 kr
29,990 kr
SKU 773075

Þrautahús frá Topbright með 12 mismunandi verkefnum sem börn frá 18 mánaða aldri geta kannað ein eða með öðrum. Á öllum hliðum hússins eru takkar, rofar, tannhjól og ýmsir hlutir til að snúa, ýta á, skrúfa og flokka.

Börnin geta meðal annars hringt dyrabjöllu, kveikt ljós og hljóð, raðað viðarformum, notað hamarsbekk- kúlubraut og prófað ýmsa þroskandi leiki.

Leikfangið eflir einbeitingu, samhæfingu handa og augna og fínhreyfingar og veitir fjölbreytta skynjunarreynslu. Allir lausir hlutir geymast inni í húsinu þegar leik er lokið.

Aldur: 18 mánaða og eldri. Rafhlöður: 3 × AAA (fylgja ekki með).